Mitt svæði

HVAR BYRJAÐI ÞETTA?

Áhugi minn á mat og næringu kviknaði á mínum seinni árum sem afrekskona í samkvæmisdönsum. Mér fór að verða ljóst hvað næring og heilbrigt samband við mat skiptir miklu máli þegar kemur að árangri í íþróttum sem varð kveikjan að því að hefja nám í næringarfræði samhliða dansferlinum.

​Að lokum tók ég þá ákvörðun að leggja dansskóna á hilluna og snúa mér alfarið að næringarfræðinni með það að markmiði að aðstoða annað íþróttafólk við að ná markmiðum sínum og stuðla að almennri heilsu.

MITT MISSION 

Árið 2019 útskrifaðist ég úr meistaranáminu mínu í næringarfræði við Háskóla Íslands og var því orðin næringarfræðingur M.Sc.

​Eftir nokkra mánuði í starfi áttaði ég mig fljótt á því að mynstrið er yfirleitt það sama hjá okkur.

​Þegar við skráum okkur í næringarráðgjöf, næringarþjálfun eða á námskeið sem hafa það að markmiði að gera breytingar á fæðuvali þá viljum við yfirleitt "sigra heiminn á einni nóttu".

​Fólk byrjar af (of miklum) krafti en gefst svo upp og þá fara hlutirnir yfirleitt í sama farið.

​Til þess að breytingarnar verði varanlegar þurfum við að nálgast hlutina öðruvísi og hafa áhrif á þetta "allt eða ekkert" hugarfar.

​Einnig þurfum við að hætta að koma okkur upp stífum reglum í mataræðinu sem við höldum út í skamman tíma með tilheyrandi niðurrifi, samviskubiti og vanlíðan þegar við "gefumst upp".

LÆRÐU AÐ NÆRA ÞIG Í SAMRÆMI VIÐ ÞÍN MARKMIÐ OG HÁMARKA ÁRANGUR Í ÞINNI ÞJÁLFUN

3 leiðir til samvinnu (fyrir utan áskriftarleiðina)

_

1

'HVAÐ Á ÉG AÐ BORÐA EFTIR ÆFINGAR?'

Taktu fyrstu skrefin í átt að réttri næringu eftir æfingar með þessari ókeypis vefbók sem við settum saman.
 
Sækja vefbók

_

2

PRE- & POST-TRAINING NÆRING

Prógram fyrir þau sem vilja taka afköst og endurheimt í sinni þjálfun á næsta level og negla niður rétta næringarprótókólið fyrir og eftir æfingar.
 
Lesa meira

_

3

1:1 ÍÞRÓTTA-NÆRINGARÞJÁLFUN

Hámarkaðu árangur í þinni þjálfun hraðar með einstaklingsþjálfuninni okkar. Saman mótum við þitt næringarprótókól sem hámarkar árangur í þinni þjálfun. 

Umsókn

_

Ég get svo innilega mælt með Lilju; hún er eldklár og frábær leiðbeinandi - ekki bara í næringu heldur bara í heilbrigðu líferni yfir höfuð! Hún á stóran þátt í að koma mér á þann stað sem ég er í dag."

_

,,Alveg geggjað námskeið hjà þér! Desember og janúar eru búnir að vera stórir mánuðir hjá mér í æfingum og aldrei æft jafn mikið og á eins miklu álagi, þvílíkur munur að hafa verið búin að gera pre- og post-training máltíðir! Gerði gæfu muninn."

_

Við lærðum fljótt hversu mikilvægt er að setja máltíðir fyrir og eftir æfingar rétt saman og finnum við bæði mjög mikinn mun á afköstum á æfingum, höldum fókus mikið lengur og þekkjum líka betur merki líkamans um hvenær við þurfum að næra og vökva okkur."

Einfalt með Nutreleat

Áskriftarleið sem einfaldar þér lífið í tengslum við mat og næringu.

Lesa meira

Hvað á ég að borða eftir æfingar?

Lærðu að setja saman máltíðir sem stuðla að betri endurheimt!

Fylltu út formið hér að neðan til að sækja FRÍU vefbókina þína og byrjaðu að gera breytingar Í DAG!