Nýtt frá Nutreleat
Appið þar sem næringin fylgir æfingaálaginu
Nutreleat appið byggir á tímabilaskiptri næringu (e. periodized nutrition). Hver dagur fær lit út frá æfingunum þínum og næringarviðmiðin fylgja álaginu. Næringarplön, litakóðaðar uppskriftir og innkaupalisti á einum stað.
„Ég finn mikinn mun á afköstum og endurheimt eftir að ég fór að næra mig í takt við æfingaálagið.“
Ásdís Þóra Böðvarsdóttir, knattspyrnukona
✓ Prófaðu frítt í 14 daga ✓ Engin skuldbinding
Það sem við gerum
Við hjálpum þér að
01
Hámarka árangur
Meiri orka á æfingum, betri endurheimt og minni líkur á meiðslum, með næringu sem passar þínu æfingaálagi.
02
Byggja upp heilbrigt samband við mat
Engar öfgar eða boð og bönn. Þú lærir að borða nóg, á réttum tíma og í takt við það sem dagurinn kallar á.
03
Hafa jákvæð áhrif á heilsuna
Næring sem styður við heilsuna til lengri tíma, ekki bara fyrir næstu æfingu eða keppni.
Leiðirnar
Veldu leiðina sem hentar þér
Frá fyrstu skrefunum yfir í einstaklingsmiðaða ráðgjöf.
01 · Nýtt
Nutreleat appið
Næringarviðmið sem fylgja æfingaálaginu dag frá degi, næringarplön og litakóðaðar uppskriftir. Prófaðu frítt í 14 daga.
02 · 6 vikur
Grunnnámskeið í íþróttanæringu
Fyrir þau sem eru að taka sín fyrstu skref í íþróttanæringu, leggja réttan grunn og taka frammistöðuna upp á næsta stig.
03 · Einstaklingsmiðað
1:1 íþróttanæringarráðgjöf
Saman mótum við þína næringaráætlun út frá þinni íþrótt, æfingaálagi og markmiðum, svo þú náir árangri hraðar.
Umsagnir
Það sem íþróttafólkið segir
“
Ég er orkumeiri og er að borða um helmingi meira en ég gerði ásamt því að vera nánast meiðslalaus síðan ég byrjaði hjá henni.
Lilja hjálpaði mér að skilja hvað það skiptir miklu máli að borða nóg og rétt til að fá sem mest út úr æfingum og leikjum, vera óhrædd við kolvetni og hlusta á líkamann minn.
![]() | Hafrún Rakel Halldórsdóttir Landsliðskona í fótbolta · Einstaklingsráðgjöf |
“
Áður var maður algjörlega á bensínljósinu eftir erfiðu og löngu æfingardagana.
En eftir að ég fór að leggja meiri áherslu á næringuna í samvinnu með Lilju fór orkan að verða miklu meiri og fyrr tilbúinn í næstu æfingu. Eftir að appið kom svo inn í jöfnuna var miklu auðveldara að setja saman máltíðir og skipuleggja daginn.
Björgvin Hallgrímsson Hlaupari · Einstaklingsráðgjöf og appið |
“
Núna sér maður mikinn mun, hann er að klára leikina á mun hærra tempói.
Við höfum tekið eftir því að eftir að við foreldrarnir fórum að pæla meira í mataræðinu og hann sjálfur, sérstaklega fyrir leiki, þá finnst mér hann hafa meiri orku í leikjum. Hann átti það til að verða þreyttur um miðjan seinnihálfleik.
F | Foreldrar ungs knattspyrnumanns Grunnnámskeið |
Um Lilju
Lilja Guðmundsdóttir
Íþróttanæringarfræðingur, M.Sc.
Eftir rúmlega 17 ára feril sem afrekskona í samkvæmisdönsum ákvað ég að leggja skóna á hilluna og aðstoða annað íþróttafólk við að fá sem mest út úr sinni þjálfun með réttri næringarinntöku.
Ég hef unnið með íþróttafólki frá 2020, bæði í einstaklingsráðgjöf og með íþróttafélögum og sérsamböndum, og starfa einnig hjá Afreksmiðstöð Íslands (AMÍ), Team Iceland, þar sem ég sinni næringarráðgjöf fyrir landsliðs- og afreksíþróttafólk.
Fyrir íþróttafélög og lið
Fyrirlestrar og fræðsla um íþróttanæringu
Fyrir íþróttafólk, þjálfara og foreldra. Lilja hefur m.a. haldið fræðslu fyrir íþróttafélög, sérsambönd og foreldra ungs íþróttafólks, og setur efnið fram á skiljanlegan og aðgengilegan hátt.
Frí vefbók
Hvað á ég að borða eftir æfingar?
Lærðu að setja saman máltíðir sem stuðla að betri endurheimt. Skráðu þig og fáðu vefbókina senda strax.

